Kort og GPS
Það er ekki innbyggt GPS-loftnet í tækinu. Til að hægt sé að nota forrit sem krefjast GPS-
tengingar þarf að nota samhæfan ytri GPS-móttakara (aukabúnaður sem seldur er sér).
Paraðu GPS-móttakarann við tækið með Bluetooth-tækni. Nánari upplýsingar eru í
notendahandbókinni sem fylgir GPS-móttakaranum.
Hægt er að nota GPS-kerfið (global positioning system) til að styðja kortaforritið. Finndu
út staðsetningu þína eða mældu fjarlægðir og reiknaðu út hnit.
Þegar þú hefur parað tækið við ytri GPS-móttakara geta liðið nokkrar mínútur áður en
tækið birtir staðsetninguna.
GPS-kerfið (Global Positioning System) er rekið af Bandaríkjastjórn sem ber alla ábyrgð
á nákvæmni þess og viðhaldi. Nákvæmni staðsetningargagna kann að verða fyrir
áhrifum af breytingum á GPS-gervihnöttum sem gerðar eru af Bandaríkjastjórn og kann
að breytast í samræmi við stefnu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um borgaralegt
GPS og alríkisáætlun um þráðlausa leiðsögu. Slæm rúmfræði gervihnatta getur einnig
haft áhrif á nákvæmni. Staðsetning, byggingar, náttúrulegar hindranir auk
veðurskilyrða kunna að hafa áhrif á móttöku og gæði GPS-merkja. Verið getur að GPS-
merki náist ekki inni í byggingum eða neðanjarðargöngum og þau geta orðið fyrir
áhrifum frá efnum eins og steypu og málmi.
Ekki ætti að nota GPS fyrir nákvæmar staðsetningarmælingar og aldrei ætti að treysta
eingöngu á staðsetningargögn frá GPS-móttakaranum og símkerfi fyrir staðsetningu
eða leiðsögn.