
Uppfærsla hugbúnaðar með tölvu
Hugbúnaðaruppfærslur geta falið í sér nýja eiginleika og bættar aðgerðir sem ekki voru
fáanlegar þegar tækið var keypt. Uppfærsla á hugbúnaði getur einnig bætt afköst
tækisins.
Nokia Software Updater er tölvuforrit sem gerir þér kleift að uppfæra hugbúnaðinn í
tækinu. Til að uppfæra hugbúnaðinn í tækinu þarf samhæfa tölvu, háhraða
internettengingu og samhæfa USB-gagnasnúru til að tengja tækið við tölvuna.
Hægt er að fá nánari upplýsingar, skoða athugasemdir fyrir nýjustu hugbúnaðarútgáfur
og sækja Nokia Software Updater forritið er að finna á www.nokia.com/
softwareupdate eða vefsvæði Nokia í þínu landi.
Gerðu eftirfarandi til að uppfæra hugbúnað tækisins:
1 Sæktu Nokia Software Updater forritið í tölvuna og settu það upp.
2 Tengdu tækið við tölvuna með USB-gagnasnúru og opnaðu Nokia Software Updater
forritið. Nokia Software Updater forritið leiðbeinir þér við að taka öryggisafrit af
skránum þínum, uppfæra hugbúnaðinn og endurheimta skrárnar.